Starfsmenn kaupa rekstur og tæki blikkhluta Bergraf
Nokkrir starfsmenn Bergraf-blikk hafa keypt rekstur og tæki blikksmiðjunnar og stofnað fyrirtækið Blikksmiðja Suðurnesja ehf. Nýja fyrirtækið er í nánu samstarfi við Bergraf og hafa fyrirtækin gert með sér samstarfssamning. Blikksmiðja Suðurnesja er í sama húsnæði og fyrir sölu, starfsmenn og eigendur líta björtum augum á framtíðina og samstarfið.
Blikksmiðja Suðurnesja hefur á að skipa hæfum og reynslumiklum starfsmönnum á sviði blikksmíði og framkvæmdum almennt.
Eigendur og starfsmenn Bergraf óska nýju blikksmiðjunni velfarnaðar í framtíðinni.